Sýrt grænmeti – hvítt Kimchi – Móðir jörð Online now

Description
Súrkál frá Vallanesi. Hvítt Kimchi. Kimchi á sér sterka hefð í Asíu og hentar vel t.d. með grænmetis- og fiskréttum.
Kimchi er látið gerjast eins og súrkál skv. aðferð sem kallar fram mjókursýrugerla (lactobacillus) í vörunni sem bæta metlinguna.Við framleiðslu þessarar vöru beitum við hefðmundinni vinnsluaðferð sem kallar fram mjólkursýrugerla (lactobacillus) í vörunni sem bæta metlinguna.
Grænmetið er úr eigin lífrænni ræktun. Til að auka á styrkleikann má bæta við chilli.
Varan hefur ekki hlotið neina hitameðferð og geymist í kæli við 0-4°C
Súrkál er gott með flestum mat.
Innihaldslýsing
Innihald: Hnúðkál, grænkál, sesamfræ, sjávarsalt, engifer, hvítlaukur, kóriander fræ.
Móðir jörð
Móðir Jörð ræktar og framleiðir íslensk matvæli úr jurtaríkinu. Fyrirtækið býður lífrænt ræktaðar, hollar og bragðgóðar afurðir sem framleiddar eru í sátt við náttúruna. Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði er fyrirtæki í lífrænni ræktun og matvæla-framleiðslu. Fyrirtækið leggur stund á korn- og grænmetisræktun og framleiðir tilbúnar hollustu- og sælkeravörur. Móðir Jörð er í eigu hjónanna Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur.
Additional Information
Title | Default Title |
---|